Skilmálar

Höfundarréttur

Allur höfundarréttur að ljósmyndum er og verður í eigu Thelmu Arngrímsdóttur, hér eftir nefnd „ljósmyndari“.
Um höfundarrétt ljósmyndara gilda höfundarréttarlög nr. 73/1972.
Afhending ljósmynda til viðskiptavinar felur lögum samkvæmt ekki í sér framsal á höfundarrétti, né veitir hún heimild til breytinga á ljósmyndum.

Meðhöndlun ljósmynda

Óheimilt er að nota myndirnar til auglýsinga eða annarrar birtingar nema samið sé sérstaklega um slíkt.
Óheimilt er að breyta myndum á nokkurn hátt.

Við myndbirtingar á netinu er æskilegt að geta nafns ljósmyndara í texta (@thelma.arngrims)

Greiðsla og afhending

Greiðsla fyrir hverja myndatöku skal fara fram samkvæmt samkomulagi viðskiptavinar og ljósmyndara.
Ljósmyndir úr myndatöku verða ekki afhentar nema að öll greiðsla hafi borist.

Ljósmyndari áskilur sér rétt á 6-10 vikna tíma til myndvinnslu sem ákvarðast af eðli töku og vinnuálagi.

Varðveisla

Ljósmyndari varðveitir unnar ljósmyndir í eitt ár frá tökudegi fyrir viðskiptavin. Eftir þann tíma er varðveisla ljósmynda alfarið á ábyrgð viðskiptavinar.

Annað

Við ráðningu ljósmyndara samþykkir viðskiptavinur ljósmyndun, myndvinnslu, varðveislu, birtingu og aðra vinnslu ljósmyndara í samræmi við skilmála þessa, sbr. lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

Ef engar athugasemdir um skilmála þessa berast fyrir tiltekna myndatöku, telst viðskiptavinur hafa samþykkt þá.



Brot á höfundarrétti ljósmyndara og skilmálum þessum varða við höfundarréttarlög og áskilur ljósmyndari sér allan rétt vegna slíkra brota.